jæja fokk it!
ég blogga bara meira... hehe
Ég og Daníel erum sko bara búin að hafa það kósý heima í morgun. Hann er svo mikið krútt * elska hann útaf lífinu* hann var svo yndislegur við mig að sofa bara til 10:):) ogeðslega nice skobb... síðan erum við bara búin að vera að dúlla okkur eikkað á náttfötunm að ,,leika okkur" hehe. Hann er svo mikið krútt spjallar og spjallar. Hann var einmitt að vakna núna og það er bara brandari að hlusta á hann spjalla hehe... litla rassgatið mitt
En hva segiði ætlar einhver á leik í rvk í kveld??? ég ætla
Svo er ég að hugsa um að fara að taka á því í ræktinni gott fólk... veitir ekkert af útrásinni og ég held ég viti ekki um neina betri útrás heldur enn að fara í ræktina
En jæja Daníel er ekki alveg að sætta sig við að mamma sín hangi bara í tövlunni og tali ekkert við sig haha... þannig ég ætla að fara að spjalla við litla enginlinn minn
luvja gus
KV. Hófí
Blogg...;)??
Á maður að blogga eða hvað... hehe alveg dauð þessi blessaða síða mín.
Margt og mikið búið að ske uppá síðkastið. Búin að flytja framm og til baka, bgn-rvk-bgn, jamms er bara komin enn og aftur í nösina. Bölvað flakk á manni![]()
En mín skellti sér á skrall í gær. Fór á stelpu tjútt með Huggu, Thelmu, Heiðrúnu, Lóu og einhverjum stelpum sem þær þekktu. Var bara mikið gaman mikið fjör..... Fórum út að borða á Horninu og síðan skelltu við okkur í smá partey... síðan var bara haldið niður í bæ, mín var nú ekki alveg með úthald á við hina fjörkálfana og fór nú bara snemma heim
en samt sem áður fínasta kvöld, takk fyrir kvöldið alle sammen.
En jæja verð nú eiginlega bara að viðurkenna það að ég er ekki í miklu blogg stuði núna þannig að .... þangað til næst
Hófí![]()
Jæja þá best að hlíða....;);)
Geggjuð helgi liðin.... Á föstudaginn vorum við júlla skvís á fullu að undir búa reunionið. Vorum orðnar eins og hálfgerðir spassar undir lokin vorum svo spenntar og létum eins og krakkagrísir í skalló að undirbúa ratleikinn haha....
Það var ógó fyndið að þegar við vorum loksins búnar að koma öllum vísbendinugum fyrir þá föttuðum við að við settum þær ALLAR Á VITLAUSAN STAÐ!!:s algjörir kjánar skobbb...
En svo var laugardagurinn bara ógeðslega skemmtilegur í alla staði. Geggjað gaman um daginn, sumir fóru í sund og svo skelltum við okkur í skalló þar sem var nottlega ratleikurinn mikli;);) VIð júlíana héldum sko að við værum búnar að gera alveg rosalega erfiðan ratleik en viti menn ... þau kláruðu hann á fimm mínutum:S;);) Hvernig þau föttuðu vísbendinguna ,, geir ólafs rokkar"... hehe næ því ekki alveg;) Þau eru svo klár þessar elskur:o)
Síðan var bara grillað og pullur og bjölli eins og Júlí kallar það;) Og svo skelltum við okkur í óðal og horfðum á gúmmí tarzan og tókum smá diskó lige som i gamle dage:) Yndislega skemmtilegur dagur.
Svo um kvöldið var náttúrulega matur á venus og svo ógeðslega skemmtilegt ball. Ég skemmti mér alveg konunglega og takk allir fyrir geggjað kvöld:)
Eina sem ég var ósátt með voru þeir sem að mættu ekki og létu okkur ekki vita því að við komum út í mínus við þetta...:( frekar fúlt að fólk geti ekki sýnt smá tilitsemi og látið vita því að við báðum um það... held það hefði ekki drepið neinn að hringja eða senda sms... en svona er þetta sumir hugsa bara ekki út fyrir ***** á sjálfum sér ;);) hehe
En fyrir uta það ógó skemmtilegur dagur TAKK FYRIR ALLE SAMMENN
*** þið getið séð myndir af reunioninu t.d á blogginu hennar söru www.blog.central.is/saradogg og inná myndasíðunni hennar***
Þangað til næst
kossar og knús
Hófí ,,ofurbloggari" hehe
Ég er lööööötttt..... ;p
Ég er búin að vera veik síðustu daga. Frekar leiðinlegt:( Svo núna er greyið Daníel búin að smitast , greyið litli kúturinn minn:( svo erfitt að vera svona lítill og vera lasinn. Mjög erfitt líka að horfa á barnið sitt vera lasið og lýða ekki vel...:(
En hann er nú eitthvað að braggast og hristir þetta vonandi af sér sem fyrst barasta.
Svo er bara skóli á morgun hjá kellunni. Skólinn er svona rétt að byrja og mér lýst nú bara vel á þetta enn sem komið er. Þetta verður öruggleg bara fjör. Mér lýst satt best að segja bara mjöööög vel á að hafa engin lokapróf... jibbííí... lokapróf eru ekki búin að vera minn besti vinur í gegnum skóla gönguna (sem er nú búin að vera frekar skrautleg ef ég á að segja eins og er ...lots of upd and downs...)
En já mér lýst bara vel á þetta og aldrei að vita nema maður klári bara í nesinu ... ;);)
Kemur allt í ljós
En nú er klukkan orðin margt og skóli í fyrró svo að ég er að hugsa um að fara að sofa í hausinn á mér....
**Thelma, hmm við fórum ekki í ræktina í dag??? verðum að bæta úr því;);)
**Eva ég bjalla í þig á morgun eða hinn.... ef ég hringi ekki viltu þá hringja:) ég er svo mikill slóði að ég gleymi alltaf öllu.
**The rest of you.... GÓÐA NÓTT;);)
ELSKA YKKUR ÖLL (hehe eða svona flest *blikk, blikk*
GuT nAgT
howdy partner:p
| Jæja haldiði að kjellan hafi ekki bara skellt sér í klippingu og stytti hárið bara ansi vel:p er bara ánægð með útkomuna þó að ég hafi ekki alveg verið að þora að klippa hárið sem að ég var búin að hafa svo mikið fyrir að safna. En manni veitir ekkert af breitingu annað slagið og ég er bara nok ánægð með útkomuna. En að örðu, nú erum við júlla skvís búnar að plana reunionið f. 88 árganginn og FOKK HVAÐ ÞAÐ VERÐUR GAMAN:D:D ég vona að það mæti allir því að við erum búnar að skipurleggja ógeðslega skemmtilega dagskrá og ég get bara ekki beðið þangað til. En það er alveg leyndó hvað við ætlum að gera og það er líka það sem er mest spennandi að ég fæ að vita og júlla en engin annar liggaliggalái haha... djók:p En allavegana þá verður þetta rosalegt ég hlakka geggjað mikið til. Svo er maður búin að reyna að vera duglegur á Henningkúrnum sínum núna. þó svo að ég verði að viðurkenna að ég svindla einstaka sinnum. Sérstaklega núna þegar ég er að læra undir próf þá notar maður alltaf afsökunina að maður verði að hafa lærunammi haha... engin afsökun sko nú verður maður bara að taka á honum stóra sínum og standa sig. Ég og Thelma beibí erum líka búnar að ákveða að missa 15kg fyrir jól og ætlum að fara í smá heilsuátak saman skobb. Fórum meira að segja í ræktina um daginn gg dúlegar , sveittar og sexy hahahah.... Ég hló nú samt að sjálfri mér því að ég er með svo gg lítið þol núna eftir að ég átti að það hálfa væri hellingur.... var eins og sveitt belja sem var ekki búin að fara útúr fjósinu í 10 ár eða eikkað :p Jamm ... svo er ég búin að vera að rembast við að vera í fjarnámi núna í sumar. Verð nú eiginlega að viðurkenna það að hún móðir mín hefur alveg rétt fyrir sér að ég er nú ekki með mesta sjálfsaga í heimi ... gæti staðið mig betur en ég er allavegana að reyna og ætla sko að ná þessu eina fagi sem ég tók heh... Ég átti að vera að fara í próf núna 8,ágúst en aj... Dóri er búin að vera að vinna og síðan eru ma og pa í hestaferð og ég er bara búin að vera ein með Daníel og kanski ekki búin að hafa mjög mikinn tíma til að læra. Svo að ég ákvað að úrþví að Dóri er að fara í frí núna og ma og pa að koma heim þá hef ég meiri tíma til að læra og ætla þessvegna bara að skella mér í sjúkraprófið þann 13.ágúst og rúlla því bara upp siluru:p jæja dúllurassarnir mínir er farin að sofa í hausinn á mér meigið þið eiga yndæla nótt og dreymi ykkur vek hehe GN Hófí BTW Inga Rán hvað varð um kaffið og kleinurnar??? :o minns var farin að hlakka til að koma í heimsókn , láttu heyra í þér vinan, er ekki með númerið þitt svo að ... bjallaðu:) |
Var að setja inn könnun... allir að kjósa:)
| KJÓSIÐ NÚNA.... ÞIÐ VERÐIÐ AÐ HJÁLPA MÉR AÐ ÁKVEÐA MIG LANGAR GEGGJAÐ AÐ PRÓFA AÐ KLIPPA STUTT AFTUR EN VEIT EKKI HVORT ÉG Á AÐ ÞORA SVO AÐ ALLIR AÐ KJÓSAAAAAA :O) HÓFÍ |
Við erum ekki ódauðleg...!
| Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160 kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins. Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl. Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttust framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að "negla" þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina. Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín? Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur? Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var "kúlið" alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum. Höf. Garðar Örn Hinriksson |
skotárás á Íslandi... ja hérna hér...!!
Já ég verð nú eiginlega að segja að ég bjóst eignilega aldrei við því að lesa um skotárás á Íslandi í fréttunum... Finnst það eitthvað svo óraunverulegt að svoleiðis hlutir gerist hér í landi. En þetta getur víst gerst allstaðar og það er alveg hörmulegt þegr saklaust fólk lendir í þessu ... finnst þetta hrikalegt![]()
---
En að öðru... Við skötuhjúin skelltum okkur í afmæli til hennar Thelmu sætu í gær... takk fyrir okkur gæskan![]()
Mín var nottlega búin að undirbúa sig í smá tíma og þenja mjaltavélina alveg hægri vinstri...hehe. Það var sko alveg ótrúlega gaman , ég skemmti mér allavegana konunglega.
það er svo skrítið þegar maður er orðin mamma, sama hversu skemmtilegt er þá hlakkar manni ekkert smá mikið til að koma heim að sjá litla kútinn sinn og kjúsa hann híhí... ÉG ELSKA AÐ VERA MAMMA![]()
![]()
---
En útí aðra sálma enn á ný
Ég er að hugsa um að skella mér bara í skólann í haust... pínku snemmt en aj... mig langar!
Er að hugsa um að taka fjarnám í Ensku, Félagsfræði og íþróttum og síðan ætla ég að taka lisitir og menningu og sjónlistir í dagskólanum í FB. Þannig að þetta verða líklegast 13-16 einingar, fer eftir því hvort ég takai bara annan eða báða sjónlistar áfangana. Jííííí ég er spennt
Svo er það bara að standa sig það þýðir ekkert bullumsulll... hér eftir er BANNAÐ AÐ FALLA
Svo er reyndar bara eitt sem á eftir að græja sem að ég vona að reddist og það er pössun fyrir Daníel á meða ég er í skólanum... En það bjargast vonandi einhvernveginn.
---
Svo er bara allt á fulle femm í LR núna, ógeðslega skemmtilegt
Ég er að stefna að því að verða team leader sem fyrst... það kemur vonandi bara fljótlega ég er nottlega mikið að hugsa um Daníel og sonna og hann er alveg 100% númer eitt í forgangsröðinni, svo kemur og mennta sig og svo LR... ![]()
---
En jæja dúllu rassarnir míniar
ég kveð í bili
yfir og út
Hófí
veikindi og vesen
Bullandi kvef og hállsbólga og höfuðverkur... var með 39,5stiga hita í gær og 39 í dag... klárlega ekki að gera sig, frekar ömurlegt að vera svona veikur.
Svo er svo erfitt að sinn alitla gullmolanum mínum þegar ég er lasinn því að það er svo erfitt að heyra hann gráta og sonna ,,, En vonandi verð ég orðin hressari á morgun hef sko engan tíma i svona vitleysu
En ajjj,,, ætlaði að blogga eikkað en er hreynlega bara ekki að nenna því hehe... þannig að ég er að hugsa um að kveðja bara tölvuskjáinn og heilsa uppá koddann
....
Knús og kossar
Hófílíus
Hædíhó:o)
Jæja núna þessa vikuna er Marinó búin að vera hjá mér og Daníel á morgnana. Gisti hjá okkur á mánudag og þriðjudag og sváfum bara lengi og höfðum það gott
Hann var agalega krúttaralegur þegar hann vaknaði á mánudaginn alveg dauðþreyttur og það fyrsta sem hann sagði ,, má ég aðeins knúsa Daníel" hehe algjört krútt
Síðan er hann búin að koma bara til okkar núna síðustu tvo morgna og gistir svo aftur í kvöld, ágætt að hafa smá félagsskap til tilbreytingar bara gaman af því. Svo loksins er Dóri komin í vaktar frí. Ohhh mér finnst svo nice þegar hann er í fríi hehe... svo gaman að hafa hann hjá okkur
Við skruppum til Reykjavíkur í dag. Mín var að fara að hitta eina konu og síðan kíktum við í heimsókn til Evu elskunar og familiu
Æðislegt að hitta þig eskan![]()
Svo þegar við vorum búin þar kíktum við smá stund á ömmu hans Dóra og eftir það á Fanney . Hún var að koma frá Svíðþjóð og kom alveg hlaðin gjöfum til baka þessi elska. Keypti ógeðslega flottan svona síðan bol á mig og silki boxer á Dóra og svo fullt fullt af flottum fötum á Daníel og svo nammi hehe
TAKK FYRIR OKKUR
Svo er ég nú eiginlega farin að skammast mín, svo langt síðan ég hef farið og heimsótt hana systir mína
Kem til þín næst þegar ég kem til Reykjavíkur, plata þig kanski með mér í kringluna eða smárann
Og Júlíana mín ég verð líka að kíkja á þig ástin
ooooogggg allir aðrir hehe... alltaf nóg að heimsækja þó að maður sé alls ekki nógu duglegur að því
Ég er á einhverju mómenti hérna og verð bara eitthvað að tjá tilfinningar mínar hehe langar bara að segja ma og pa mér þykir ótrúlega vænt um ykkur og þið eruð búin að vera ótrúlega góð að hjálpa okkur og þó að ég sé þrjóskupúki og láti ekki segja mér hehe neitt þá vil ég að þið vitið að ég met það mikils hvað þið eruð góð við mig og eruð tilbúin til að stiðja við bakið á mér og litlu fjölskyldunni minni![]()
Dóri og Daníel, elska ykkur útaf lífinu og þið eruð flottustu strákarnir mínir og ég hlakka til að eyða ævinni með ykkur hihi
luv ya , luv ya, luv ya...
Og aaaaaaaaaaaaaaalllllllllarr vinkonur mínar mér þykir vænt um ykkur og ég verð að vera duglegri að koma í heimsókn og hringja í ykkur þið fyrirgefið mér ef að ég er búin að vera of upptekin af einhverju... heh, og en þið meigið líka alltaf koma í heimsókn til mín alltaf velkomnar![]()
Og bar svona til að ljúka þessari væmni minni þá langar mig líka að segja systkinum mínum LUV YA hehe![]()
Jæja nú getur maður farið sæll að sofa hihi vantaði bara eikkað að koma þessu frá mér hehe
Góða nótt snúllurnar mínar
LUV
Hófí